Þorsteinn Guðmundsson, Hólmgeir Björnsson og Guðni Þorvaldsson. Langtímaáhrif nituráburðar á kolefni, nitur og auðleyst næringarefni í snauðri sandjörð
Áhrif N-áburðar á áður ógróna sandjörð í langtímatilraun á Geitasandi voru rannsökuð eftir 50 ára tilraunatímabil. Tilraunaliðir voru árlega 50, 100, 150 og 200 kg N ha-1 auk 53 kg P og 100 kg K ha-1 á alla liði. Jarðvegssýni voru tekin úr 0-5, 5-10 og 10-20 cm...
Hólmgeir Björnsson , Þorsteinn Guðmundsson og Guðni Þorvaldsson. Áhrif nituráburðar á uppskeru af grasi og nýting hans í langtímatilraun á snauðri sandjörð
Tilraun með N-áburð á nýræktartúni á Geitasandi hófst 1958 og stóð til 2007. Umfjöllun takmarkast við 1959 – 2006. Áburðarliðir voru 50, 100, 150 og 200 kg N ha-1 á ári. Grunnáburður var 53 kg P og 100 K ha-1 á alla liði. Að vori voru borin á 50N eða 100N og...
Hólmgeir Björnsson, Þorsteinn Guðmundsson og Guðni Þorvaldsson 2018. Brennisteinn í langtímatilraunum á Geitasandi
Langtímatilraunir á nýræktartúni á Geitasandi stóðu frá 1959 til 2007. Brennisteinn fylgdi með í fosfóráburðinum þrífosfati, en hóflegur skortur á brennisteini kom seinna í ljós. Frá 1973 voru tilraunaliðir með 0, 1, 2, 3, 4 og 6 kg S ha-1 árlega. Brennisteinn var...
Birna Kristín Baldursdóttir, Albína Hulda Pálsdóttir og Jón Hallsteinn Hallsson, 2017
Talið er að geitfé hafi fyrst borist til Íslands með landnámsmönnum og hafi verið hér án innblöndunar í um 1100 ár. Ekki er fullvíst um uppruna geitfjárstofnsins en jafnan er talið að landnámsmenn hafi haft með sér búfé frá heimahögum sínum í Noregi. Þó hafa...
Christina Stadler, 2017
Vetrarræktun í gróðurhúsum á Íslandi er algjörlega háð aukalýsingu. Lýsing getur því lengt uppskerutímann. Yfir háveturinn er rafmagnskostnaður mjög hár en hann er hægt að lækka með því að lýsa á nóttunni og um helgar. Markmið tilraunarinnar var að prófa hvort...
Ingibjörg Sigurðardóttir, Runólfur Smári Steinþórsson. Ferðamáladeild Háskólans á Hólum, Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, 2015
Þróun og efnahagslegt mikilvægi klasa hefur verið viðfangsefni fræðimanna um árabil. Kenningum um klasa og klasaþróun hefur verið beitt við greiningu á ýmsum atvinnugreinum og landsvæðum, meðal annars í dreifbýli, en sjaldan til greiningar á hestamennsku sem...
Elín Fjóla Þórarinsdóttir 2014
Áður en hafist er handa við endurheimt vistkerfa er mikilvægt að meta ástand lands á viðkomandi svæði og leggja mat á þætti sem hamla framvindu. Landgræðsla ríkisins hefur þróað aðferðafræði til að meta og kortleggja ástand vistkerfa áður en hafist er handa við...
Christina Stadler 2014
Vetrarræktun í gróðurhúsum á Íslandi er algjörlega háð aukalýsingu. Viðbótarlýsing getur lengt uppskerutímann og þannig dregið úr þörf fyrir innflutning grænmetis að vetri til. Flestir ræktendur rækta tómatplöntur á eigin rót. Markmið rannsóknarinnar voru að kanna...
Sigurður Ingvarsson, Bjarni Diðrik Sigurðsson og Þorsteinn Guðmundsson 2014.
Alþjóðlega vísindaritið Icelandic Agricultural Sciences (IAS) birtir greinar um hagnýt og fræðileg efni í náttúruvísindum. Tímaritið er í prentaðri útgáfu og í opnum rafrænum aðgangi. Greinar í IAS koma fram í ýmsum alþjóðlegum vefsetrum. Leit var framkvæmd í...
Sigríður Erla Elefsen, Halldór Sverrisson og Jón Hallsteinn Hallsson 2014.
Plöntusjúkdómar hafa mikil neikvæð áhrif á framleiðni í landbúnaði. Samfara auknum flutningum og breyttu veðurfari mun útbreiðsla plöntusjúkdóma breytast, þeir berast hraðar milli landa og í meira mæli en áður. Sveppir eru stór hluti sjúkdómsvalda og oft leggjast...
Þórey Ólöf Gylfadóttir, Þórdís Anna Kristjánsdóttir og Áslaug Helgadóttir 2014.
Sýnt hefur verið fram á að fjölbreytt gróðurfar túna geti leitt til meiri heyfengs en séu tegundir ræktaðar í hreinrækt. Lykilatriði er þó að velja saman tegundir sem búa yfir mismunandi eiginleikum og að hlutdeild þeirra í blöndunni haldist nokkuð stöðug en sveiflist...
1. árgangur 2014
Þórey Ólöf Gylfadóttir, Þórdís Anna Kristjánsdóttir og Áslaug Helgadóttir 2014. Notum smárablöndur―það borgar sig. Skrína 1: 1. Ritstýrð grein Sigríður Erla Elefsen, Halldór Sverrisson og Jón Hallsteinn Hallsson 2014. Sveppasjúkdómar á Íslandi. Skrína 1: 2. ...